Til bakaPrenta
Stjórn SSH - 634

Haldinn í Hamraborg 9,
05.10.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Almar Guðmundsson ,
Ásdís Kristjánsdóttir ,
Einar Þorsteinsson ,
Hilmar Gunnarsson ,
Jóhanna Hreinsdóttir ,
Þór Sigurgeirsson ,
Þórður Þórarinsson ,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH , Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH .
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH
Ásdís Kristjánsdóttir varaformaður stjórnar SSH setti fund og gengið var til dagskrár.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2003010 - Samgöngusáttmálinn - Verkefni
Umræður um fjármögnun Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Framhald frá umræðum 633. fundar þar sem fjármögnun sáttmálans var til umræðu undir 3. lið.


Umræður
 
Gestir
Þorsteinn R. Hermannsson framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
2. 2608003 - Almenningssamgöngur - þjónustusamningur og fjárhagsáætlun
Framhald umræðu frá 631. fundi og 56. eigendafundi Strætó bs. Starfs- og fjárhagsáætlun Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB ohf.), en hún hefur nú verið send sveitarfélögunum og innviðaráðuneytinu f.h. ríkisins til afgreiðslu til samræmis við gr. 4.2 í þjónustusamningi aðila.
Á 56. eigendafundi Strætó bs. var framkvæmdastjóra SSH falið að greina frekar ákveðna þætti áætlunar félagsins til samræmis við umræður fundarins og í kjölfarið yrði málið tekið fyrir að nýju á vettvangi stjórnar SSH. Framkvæmdastjóri SSH fer yfir stöðu mála.


Umræður
3. 1910010 - SSH Fjárhagsáætlun
Fyrirliggjandi eru drög að starfs- og fjárhagsáætlun SSH vegna ársins 2027 en þau verða lögð fram til samþykktar á aðalfundi SSH 13. nóvember nk. Framkvæmdastjóri kynnir.

Fyrirliggjandi drög að starfs- og fjárhagsáætlun SSH eru lögð fram til kynningar og umræðu. Framkvæmdastjóra er falið að vinna þau áfram til samræmis við umræður fundarins og verða þau lögð fram í endanlegri mynd á fundi stjórnar 2. nóvember nk. og til samþykktar á aðalfundi SSH.
4. 2609003 - Fjárlög 2027
Frumvarp til fjárlaga 2027 er nú til meðferðar Alþingis og hefur verið sent til umsagnar en umsagnarfrestur er til og með 7. október nk. Fyrirliggjandi eru drög að umsögn SSH um frumvarpið.

Stjórn SSH bókar eftirfarandi vegna framlags ríkisins til samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna:

"Stjórn SSH lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvaða afleiðingar niðurfelling á framlagi ríkisins til sveitarfélaganna kemur til með að hafa á þjónustu við börn og samþættingu þjónustu í þágu farsældar þeirra. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna byggja á því að sveitarfélög tryggi aðgengi að samþættri þjónustu, upplýsingamiðlun, þátttöku barna og fræðslu. Niðurfelling framlagsins veikir getu sveitarfélaganna til að sinna þessum verkefnum og getu tengiliða og málstjóra til að sinna lögbundnum hlutverkum sínum.

Á höfuðborgarsvæðinu voru mál 3.442 barna skráð í samþættingu í lok apríl 2026. Framlag ríkisins stendur undir um 54 stöðugildum tengiliða og málstjóra á svæðinu og niðurfelling þess myndi því óhjákvæmilega hafa áhrif á umfang og gæði þeirrar þjónustu sem unnt er að veita. Slík skerðing myndi meðal annars leiða til aukins álags á starfsfólk sveitarfélaganna, hægari þjónustu, ójafnara aðgengis barna að þjónustu og veikara stuðningsnets fyrir þau börn sem mest þurfa á aðstoð að halda.Minna svigrúm væri fyrir tengiliði til að sinna hlutverki sínu sem kemur niður á skilvirkni snemmtækrar íhlutunar. Færri myndu sinna hlutverki málstjóra en bæði tengiliðir og málstjórar eru lykilaðilar þegar kemur að því að koma málum barna í skýran farveg, fylgja eftir stuðningsáætlunum og fyrirbyggja þjónusturof þegar mál færast milli þjónustustiga.

Stjórn SSH telur að niðurfellingin tefli árangri innleiðingar og markmiðum framkvæmdaáætlunarinnar í hættu og skorar á ríkið að tryggja áframhaldandi fjármögnun meðan fjárþörf sveitarfélaganna er metin."


Framkvæmdastjóra er falið að fullgera umsögn SSH um frumvarp til fjárlaga og senda Alþingi.

5. 2311003 - Fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum o.fl.
Á 631. fundi stjórnar var framkvæmdastjóra falið að annast um skipan vinnuhóps vegna þeirra breytinga sem verða á heilbrigðiseftirliti um næstu áramót en m.a. þarf að leggja mat á eftirstæð verkefni sveitarfélaganna og næstu mögulegu skref hvað varðar fyrirkomulag þeirra. Hópurinn er enn að störfum en áætlað er að skýrsla hans liggi fyrir á næstu dögum.

Á 61. fundi samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu var einnig fjallað um málið og var eftirfarandi fært til bókar vegna þess:

"Samráðshópur um vatnsvernd og nýtingu lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála varðandi endurskoðun á Samþykktum um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar. Ljóst er að við þær lagabreytingar sem taka gildi 1. janúar 2027, falla úr gildi eftirlit og starfsleyfisútgáfa heilbrigðisnefnda á vatnsverndarsvæðinu. Samkvæmt lögunum færist eftirlit frá sveitarfélögunum til ríkisins, en óljóst er með hvaða hætti aðkoma sveitarfélaga verður og með hvaða hætti breyta þarf samþykktinni. Samráðshópurinn telur mikilvægt að kallað verði eftir skýrum upplýsingum frá ríkinu um aðkomu sveitarfélaganna að eftirliti og fyrirhugaðar breytingar á regluverki málaflokksins. Jafnframt óskar hópurinn upplýsinga um hvernig reglubundnu eftirliti með gæðum neysluvatns verði háttað."

Fyrirliggjandi til samþykktar eru drög að erindi til atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vegna þessa. Afrit erindisins verði jafnframt sent stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Samþykkt.
6. 1910005 - Umsagnir þingmála
Fyrirliggjandi til staðfestingar er umsögn SSH um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 5. mál, sem send var nefndasviði Alþingis hinn 1. október 2026 að höfðu samráði við stjórn SSH með tölvupóstum.

Fyrirliggjandi til staðfestingar er umsögn SSH um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030, 75. mál, sem send var nefndasviði Alþingis hinn 1. október 2026 að höfðu samráði við stjórn SSH með tölvupóstum.


Staðfest.
7. 1505001 - Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi til kynningar er fjárhagsáætlun ársins 2027 vegna verkefna samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu, auk minnisblaðs svæðisskipulagsstjóra með skýringum á kostnaðarliðum dags. 1. október 2026. Í framhaldinu verður fjárhagsáætlunin send til aðildarsveitarfélaga SSH og Veitna vegna fjárhagsáætlanagerðar þeirra.

Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 61. fundar samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu dags. 10. september 2026.
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 62. fundar samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu dags. 25. september 2026.

Lagt fram til kynningar. Fjárhagsáætlun hópsins er vísað til fjárhagsáætlanagerðar sveitarfélaganna eða eftir atvikum veitufyrirtækja.
8. 2502013 - Lykiltölur hins byggða umhverfis - Sóknaráætlun 2025
Verkefnið „Lykiltölur hins byggða umhverfis" er hluti af framfylgd Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025-2029. Markmið verkefnisins var að skilgreina lykiltölur um hið byggða umhverfi og gæði þess á höfuðborgarsvæðinu og bera saman við önnur borgarsvæði. Í verkefninu voru mótaðir sjálfbærnivísar fyrir hverfi á höfuðborgarsvæðinu sem varpa ljósi á hvernig hverfi styðja við markmið um sjálfbært borgarskipulag, vistvænar samgöngur, nærþjónustu, græn gæði og fjölbreytta byggð. Jafnframt er í verkefninu gerður samanburður við norræn borgarsvæði fyrir valda þætti þar sem sambærileg gögn liggja fyrir. Verkefnið var unnið af Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, VSÓ Ráðgjöf og Úrbana.

Skýrsla um verkefnið er fyrirliggjandi.

Lagt er til að skýrslan verði kynnt fyrir kjörnum fulltrúum á örfundi hinn 16. október nk. og samhliða fari fram kynning á skýrslunni „Innviðagreining og þróun húsnæðismála“ sem lögð var fram til kynningar 630. fundi.

Lagt fram til kynningar og er skrifstofu SSH falið að sjá um boðun og undirbúing kynningar- og umræðufundar, sk. örfundar, fyrir kjörna fulltrúa föstudaginn 16. október nk.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:45 

Til bakaPrenta