Til bakaPrenta
Stjórn SSH - 610

Haldinn í Hamraborg 9,
07.07.2025 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Almar Guðmundsson ,
Ásdís Kristjánsdóttir ,
Líf Magneudóttir ,
Regína Ásvaldsdóttir ,
Valdimar Víðisson ,
Þorbjörg Gísladóttir ,
Þór Sigurgeirsson ,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH , Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH .
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri Kjósarhrepps og Þór Sigurgeirssson bæjarstjóri Seltjarnarness tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

Ásdís Kristjánsdóttir varaformaður stjórnar setti fund og gengið var til dagskrár.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2409007 - Fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi til staðfestingar eru tillögur um skipan stjórnar Almenningssamgangna ohf. en stjórn hefur samþykkt þær á milli funda.

Samkvæmt tillögunum eru eftirfarandi tilnefnd í stjórn Almenningssamgangna ohf.:

Aðalmenn:
Örn Guðmundsson (stjórnarformaður)
Jón Kjartan Ágústsson
Lilja Guðríður Karlsdóttir
Guðmundur Kr. Jónsson
Sigrún Ragna Ólafsdóttir

Varamenn:
Íris Björk Hreinsdóttir
Svanhildur Jónsdóttir

Er þá gerð tillaga um að tveir aðilar af eigendavettvangi Strætó bs. verði tilnefndir til að koma að eignamati þeirra eigna sem fara munu frá Strætó bs. til Almenningssamgangna ohf.

Fyrirliggjandi tillögur að skipan stjórnar Almenningssamganga ohf. eru staðfestar.
Birgir Björn Sigurjónsson er tilnefndur af hálfu stjórnar SSH til að koma að eignamati þeirra eigna sem munu flytjast frá Strætó bs., en óskað verði eftir tilnefningu annars aðila frá stjórn Strætó bs.
2. 2205009 - Skíðasvæðin -Rekstur
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 427. fundar samstarfsnefndar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins dags. 21. maí 2025 ásamt fundargögnum.
Lagt er til að haldin verði sameiginleg vinnustofa samstarfsnefndar skíðasvæðanna og stjórnar SSH. Mikilvægt er að horft sé saman á forsendur samnings um uppbyggingu á skíðasvæðinum, þá framtíðarsýn sem legið hefur fyrir og þær sviðsmyndir sem unnar hafa verið á síðustu mánuðum. Markmiðið með þeirri vinnu verði að móta sameiginlega sýn um næstu skref verkefnisins.


Lagt fram til kynningar. Framkvæmdastjóra er falið að skipuleggja sameiginlega vinnustofu stjórnar SSH og samstarfsnefndar skíðasvæðanna.
3. 2503006 - Erindi Skógræktarfélags Reykjavíkur vegna Heiðmerkur
Fyrirliggjandi til er erindi Skógræktarfélags Reykjavíkur dags. 20. júní 2025 ásamt frekari fylgiskjölum frá félaginu þar sem m.a. kemur fram ósk um að skipaður verði starfshópur innan SSH vegna fyrirhugaðra framkvæmda Veitna í Heiðmörk. Jafnframt er fyrirliggjandi tölvupóstur frá Veitum vegna málsins dags. 26. júní 2025, svo og minnisblað Hrafnkels Á Proppé fyrrverandi svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu dags. 10. júní 2025. Málið var áður til umræðu á 607. fundi stjórnar og var skrifstofu SSH þá falin frekari greining þess.
Gerð er tillaga um að stofnað verði til sérstaks verkefnis um málið en byrjað verði á því að halda vinnustofu um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að öðlast góða sýn á málið.
Jafnframt þarf að taka til umræðu með hvaða hætti unnið verði tæknilega að málum m.a er varðar þá samþykkt vatnsverndar sem unnin var í tengslum við svæðisskipulagsgerðina 2015.


Framkvæmdastjóra er falið að vinna málið áfram, með því að boða fund stjórnar SSH með Veitum, Skógræktarfélagi Reykjavíkur, og aðilum er hafa sérþekkingu á málinu, og fá fram frekari upplýsingar og sýn á málið. Í framhaldi þess verða mótaðar tillögur um frekari farveg málsins á vettvangi SSH.
4. 2003010 - Samgöngusáttmálinn - Verkefni
Fyrirliggjandi til kynningar og umræðu er sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang verkefna dags. júní 2025, sbr. h-lið 6. gr. Samgöngusáttmálans.

Lagt fram til kynningar. Skrifstofu SSH er falið að senda skýrsluna aðildarsveitarfélögunum til kynningar. Jafnframt fari sérstök kynning á efni skýrslunnar fram hjá þeim sveitarfélögum sem þess óska.
5. 2506010 - Vettvangur fyrir langtíma lausn á losun taðs frá hesthúsum á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi til kynningar er tölvupóstur deildarstjóra gatnadeildar Kópavogsbæjar dags. 23. júní 2025. Er þar lagt til að komið verði á fót starfshóp til að vinna að framtíðarfyrirkomulagi á losun taðs frá hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Gerð er tillaga um að skrifstofu SSH verði falið að vinna áfram að tillögu að verkefnafyrirkomulagi í samstarfi við Sorpu bs.

Samþykkt.
6. 2506001 - Janus endurhæfing - Stuðningur við jaðarsetta hópa ungmenna
Fyrirliggjandi til kynningar er erindi Janusar endurhæfingar til stjórnar SSH sem barst með tölvupósti dags. 1. júní 2025. Kemur þar fram að Janus endurhæfingu hafi verið lokað 1. júní 2025, en að starfseminni sé eins og er haldið áfram í takmörkuðum mæli. Erindið varðar það hvort SSH, sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, geti komið að samstarfi um áframhaldandi rekstur, en á síðasta ári hafi 80 einstaklingar, flestir frá höfuðborgarsvæðinu, sótt endurhæfingu hjá Janusi og hafi þjónustan falið í sér úrræði fyrir jaðarsettan hóp ungmenna og létt álagi á velferðarþjónustu sveitarfélaganna.
Jafnframt liggur fyrir bréf frá hagsmunasamtökum og fagfélögum vegna málsins en það barst SSH með tölvupósti dags. 3. júlí 2025.


Stjórn SSH bókar eftirfarandi vegna málsins:

"Stjórn SSH lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim afleiðingum sem lokun Janusar endurhæfingar kann að hafa á stöðu þess hóps sem notið hefur þjónustunnar. Janus endurhæfing hefur í rúmlega tvo áratugi veitt sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir ungt fólk í viðkvæmri stöðu sem ekki á kost á hefðbundnum endurhæfingarúrræðum og hefur reynslan af þeirri þjónustu sýnt fram á mikilvægi og árangur hennar.
Er sérstaklega hvatt til endurskoðunar þeirrar ákvörðunar að segja upp samningnum án þess að sambærileg úrræði séu tryggð í staðinn. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að ungmennin fái áfram þjónustu er ljóst að mörg úr hópi þeirra sem áður nutu fyrrgreindrar þjónustu eru nú án úrræða og fyrirséð er að töluverður tími geti liðið áður en sambærileg úrræði verða í boði. Á síðasta ári sóttu 80 einstaklingar, en meðalaldur þeirra var 23 ár, endurhæfingu hjá Janusi endurhæfingu og er því ljóst að sá hópur býr nú við ákveðið úrræðaleysi.
Stjórn SSH hvetur ríkið og heilbrigðisráðherra til að tryggja áframhaldandi sérhæfða, samþætta og þverfaglega endurhæfingarþjónustu fyrir umræddan hóp. Í því ferli er einnig mikilvægt að tryggja að ekki verði rof í þjónustu gagnvart notendum hennar."

Skrifstofu SSH er falið að senda framangreinda bókun til heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra.
7. 2506012 - Samráðsfundir með innviðaráðherra í landshlutum
Fyrirliggjandi er tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu dags. 25. júní 2025 vegna fyrirhugaðra samráðsfunda með íbúum og sveitarstjórnarfólki á tímabilinu 12. - 27. ágúst nk., en óskað er liðsinnis landshlutasamtaka vegna undirbúnings fundanna, m.a. er varðar hentuga tímasetningu þeirra.

Lagt fram til kynningar. Skrifstofa SSH mun veita ráðuneytinu liðsinni við undirbúning samráðsfundar á höfuðborgarsvæðinu.
8. 2506006 - Erindi félags atvinnurekenda til sveitarstjórna
Fyrirliggjandi til kynningar er erindi Félags atvinnurekenda dags. 10. júní 2025 sem jafnframt hefur verið sent sveitarstjórnum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Kemur í erindinu fram hvatning til þess að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta og halda sköttum á atvinnuhúsnæði óbreyttum á milli ára.

Lagt fram til kynningar.
9. 1505001 - Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi til kynningar er viðauki við samning um ráðgjafaþjónustu Vatnaskila skv. fjárhagsáætlun samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu á höfuðborgarsvæðinu 2025.

Lagt fram til kynningar.
10. 2003003 - Svæðisskipulagsnefnd fundir nefndarinnar
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 139. fundar svæðisskipulagsnefndar dags. 13. júní 2025.

Lagt fram til kynningar.
11. 1505001 - Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 51. fundar samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu dags. 23. apríl 2025.
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 52. fundar samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu dags. 21. maí 2025.

Lagt fram til kynningar.
12. 2110011 - Önnur mál
Lagt er til að allir reglulegir fundir stjórnar SSH hefjist framvegis kl. 13:00 en ekki kl. 12:00 eins og verið hefur.
Samþykkt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30 

Til bakaPrenta