Til bakaPrenta
Stjórn SSH - 636

Haldinn í Hamraborg 9,
02.11.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Almar Guðmundsson ,
Þór Sigurgeirsson ,
Ásdís Kristjánsdóttir ,
Jóhanna Hreinsdóttir ,
Hildur Björnsdóttir ,
Hilmar Gunnarsson ,
Þórður Þórarinsson ,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH , Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH .
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1910010 - SSH Fjárhagsáætlun
Fyrirliggjandi eru drög að starfs- og fjárhagsáætlun SSH vegna ársins 2027 en þau verða lögð fram til samþykktar á aðalfundi SSH 13. nóvember nk. Framkvæmdastjóri kynnir.

Stjórn samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að fjárhags- og starfsáætlun ársins 2027 sem verða lögð fram til samþykktar á aðalfundi SSH 13. nóvember nk.
2. 2311003 - Fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum o.fl.
Til samræmis við umræður á 631. fundi stjórnar var komið á fót starfshóp til að greina eftirstæð verkefni sveitarfélaganna á sviði heilbrigðiseftirlits í kjölfar setningar laga nr. 82/2026 og 85/2026 og fýsileika þess að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stofni til samstarfs um þau verkefni. Skýrsla um greiningu hópsins liggur nú fyrir. Bryndís Skúladóttir, Guðbjörg Brá Gísladóttir og Guðmundur Benedikt Friðriksson kynna.


Lagt fram til kynningar. Umræður. Fallist er á tillögur starfshópsins að næstu skrefum. Starfshópurinn starfi áfram og fylgist með þróun mála hvað varðar innleiðingu lagannna og þróun á verkefnum sveitarfélaganna. Þá verði skýrsla hans og tillögur kynnt á sérstökum örfundi fyrir kjörna fulltrúa föstudaginn 6. nóvember nk.
 
Gestir
Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar.
Bryndís Skúladóttir VSÓ Ráðgjöf.
3. 2404005 - Forkönnun á sameiginlegum innkaupavef sveitarfél. innan SSH -Sóknaráætlun 2024-2026
Umfjöllun um stöðu mála og mótun tillagna að næstu skrefum varðandi þróun sameiginlegs innkaupavefs sveitarféalaga á höfuðborgarsvæðinu en um er að ræða eitt áhersluverkefna sóknaráætlunar.
Einar Bjarki Leifsson og Sigurður Guðjón Jónsson kynna.

Lagt fram til kynningar. Verkefnið verði unnið áfram til samræmis við fyrirliggjandi tillögur, þannig að unnin verði þarfagreining og tæknilýsing í samstarfi við samráðshóp verkefnisins.
 
Gestir
Einar Bjarki Leifsson ráðgjafi COWI
Sigurður Guðjón Jónsson ráðgjafi COWI
4. 2608003 - Almenningssamgöngur - þjónustusamningur og fjárhagsáætlun
Framhald umræðu frá 635. fundi. Starfs- og fjárhagsáætlun Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB ohf.), en hún hefur nú verið send sveitarfélögunum og innviðaráðuneytinu f.h. ríkisins til afgreiðslu til samræmis við gr. 4.2 í þjónustusamningi aðila. Á 56. eigendafundi Strætó bs. var framkvæmdastjóra SSH falið að greina frekar ákveðna þætti áætlunar félagsins til samræmis við umræður fundarins og í kjölfarið yrði málið tekið fyrir að nýju á vettvangi stjórnar SSH. Framkvæmdastjóri kynnir stöðu mála.

Lagt fram til kynningar.
5. 2205009 - Skíðasvæðin -Rekstur
Fyrirliggjandi er tillaga að fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, fyrir árið 2027 auk gjaldskrár fyrir komandi ár, sem hafa verið samþykktar af hálfu samstarfsnefnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sbr. fyrirliggjandi fundargerð 442. fundar nefndarinnar dags. 20. október 2026.

Þá er fyrirliggjandi til kynningar níu mánaða uppgjör vegna reksturs skíðasvæðanna í janúar til september 2026.

Lagt fram til kynningar. Eigendavettvangur skíðasvæðanna staðfestir fjárhagsáætlun skíðasvæðanna fyrir sitt leyti og er henni vísað til umræðu og afgreiðslu á vettvangi aðildarsveitarfélaganna.
6. 2312007 - Sóknaráætlun 2025-2029
Umræður um undirbúning sóknaráætlunarverkefna á árinu 2027. Lagt er til að fundur með samráðsvettvangi sóknaráætlunar verði haldinn um miðjan desember.
Samþykkt. Framkvæmdastjóra er falið að annast undirbúning og boðun fundarins, fyrir áramót.
7. 2608001 - Aðalfundur SSH 2026
Aðalfundur SSH og SHS verður haldinn föstudaginn 13. nóvember nk. í Friðrikssal Bókasafns Hafnarfjarðar. Umræður um undirbúning og dagskrá fundarins.

Umræður.
8. 2409017 - Loftslagsborgarsamningur Reykjavíkurborgar
Loftslagsborgarsamningur sem felur í sér skuldbindingu Reykjavíkur, og þátttakenda í verkefninu, til að móta aðgerðir sem draga mælanlega úr losun gróðuhúsalofttegunda og slyðja við loftslagsmarkmið Reykjavíkurborgar um að verða kolefnishlutlaus árið 2030 var undirritaður, m.a. af hálfu SSH 7. október 2024.

Fyrirliggjandi til kynningar er "Briefing note for the Icelandic Association of Local Authorities", dags. 29. september 2026 og minnisblað Hrannar Hrafnsdóttur, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar dags. 30. október 2026.

Lagt fram til kynningar.
9. 2003003 - Svæðisskipulagsnefnd fundir nefndarinnar
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 149. fundar svæðisskipulagsnefndar dags. 16. október 2026.

Lagt fram til kynningar.
10. 2110011 - Önnur mál
SSH hefur verið boðið að taka þátt í útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem fer fram 29. janúar 2027, en SSH hafa undanfarin ár tekið þátt og kynnt fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum aðildarsveitarfélaganna að Reykjavík undanskilinni.

Umræða um stöðu mála er varðar akstursþjónustu Pant.

Umræður.

Stjórn samþykkir þátttöku SSH á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins.

Áfram verði unnið að verkefnum akstursþjónustu Pant til samræmis við bókun 632. fundar stjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:10 

Til bakaPrenta