Til bakaPrenta
Stjórn SSH - 635

Haldinn í fjarfundi,
19.10.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Hildur Björnsdóttir ,
Almar Guðmundsson ,
Ásdís Kristjánsdóttir ,
Elísabet Ingunn Einarsdóttir ,
Hilmar Gunnarsson ,
Jóhanna Hreinsdóttir ,
Þórður Þórarinsson ,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH , Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH .
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608003 - Almenningssamgöngur - þjónustusamningur og fjárhagsáætlun
Framhald umræðu frá 634. fundi. Starfs- og fjárhagsáætlun Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB ohf.), en hún hefur nú verið send sveitarfélögunum og innviðaráðuneytinu f.h. ríkisins til afgreiðslu til samræmis við gr. 4.2 í þjónustusamningi aðila. Á 56. eigendafundi Strætó bs. var framkvæmdastjóra SSH falið að greina frekar ákveðna þætti áætlunar félagsins til samræmis við umræður fundarins og í kjölfarið yrði málið tekið fyrir að nýju á vettvangi stjórnar SSH. Framkvæmdastjóri kynnir stöðu mála.



Umræður
2. 2205009 - Skíðasvæðin -Rekstur
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 441. fundar samstarfsnefndar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins dags. 13. október 2026 ásamt fundargögnum. Í fundargerðinni svo og fyrirliggjandi bréfi nefndarinnar kemur fram að tveimur sviðsmyndum varðandi áframhaldandi uppbyggingu skíðasvæðanna sé vísað til stjórnar SSH sem eigendavettvangs skíðasvæðanna til ákvörðunar. Þá eru fyrirliggjandi rekstrarsviðsmyndir vegna Skálafells og erindi fulltrúa Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæðanna til stjórnar SSH vegna málsins.

Umræður. Ljóst er að fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 er krefjandi hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn er sammála um og telur mikilvægt að frekari greiningar og skoðun á möguleikum Skálafellssvæðisins og hugsanlegri samlegð við aðra mögulega uppbyggingu við Skálafell fari fram. Ákvörðunum um allar frekari framkvæmdir á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins er frestað á árinu 2027 og umræðu um næstu skref framkvæmda vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2028. Framkvæmdastjóra er falið í samráði við samstarfsnefnd skíðasvæðanna og stjórn SSH að móta verkfyrirkomulag vegna fyrrgreindrar skoðunar og greiningar og niðurstaða þeirrar vinnu liggi fyrir eigi síðar en í maí 2027.
3. 1910005 - Umsagnir þingmála
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda en umsagnarfrestur er til 20. október. Fyrirliggjandi eru drög að umsögn SSH um drögin.


Samþykkt og er skrifstofu SSH falið að senda umsögnina.
4. 2610002 - Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna
Á fundi bæjarráðs Kópavogs dags. 15. október 2026 var "Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna: skýrsla verkefnastjórnar" lögð fram en hún er nú til 12 vikna samráðs í samráðsgátt stjórnvalda, S-202/2026, ásamt skýrslu og fylgisskjölum.

Á fundinum óskaði bæjarráð eftir því að bæjarstjóri taki málið upp á vettvangi SSH.

Lagt fram. Umræður.
Elísabet Ingunn Einarsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
5. 2110011 - Önnur mál
Umræða um stöðu mála varðandi samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Hildur Björnsdóttir fór af fundi og Ásdís Kristjánsdóttir varaformaður stjórnar tók við stjórn fundarins.

Umræða um væntanlega fundi stjórnar og skipulag þeirra:
- Vinnufundur um umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu
- Kynningafundur stjórnar SSH og stjórnar undirbúningsfélags um hátæknibrennslu vegna verkefnis um sorpbrennslustöð.
- Kynningafundur með stjórn og stjórnendum Betri samgangna ohf.

Umræður. Skrifstofu SSH er falið að annast skipulagningu og boðun ofangreindra funda.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:15 

Til bakaPrenta