Til bakaPrenta
Stjórn SSH - 632

Haldinn í Hamraborg 9,
07.09.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Hildur Björnsdóttir ,
Almar Guðmundsson ,
Ásdís Kristjánsdóttir ,
Hilmar Gunnarsson ,
Jóhanna Hreinsdóttir ,
Þór Sigurgeirsson ,
Þórður Þórarinsson ,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH , Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH .
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH
Hildur Björnsdóttir formaður stjórnar SSH setti fund og gengið var til dagskrár.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2502014 - Samspil og virkni velferðarþjónustu - Sóknaráætlun 2025
Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar árið 2025 er Samspil og virkni velferðarþjónustu í víðum skilningi en markmið þess er að skerpa á áskorunum ríkis og sveitarfélaga í velferðarmálum og greina hvar óvissa ríkir um verkaskiptingu og kostnað.
Drög að skýrslu HLH ráðgjafar: Samspil og virkni velferðarþjónustu - Áskoranir ríkis og sveitarfélaga í velferðarþjónustu, liggja nú fyrir til kynningar og athugasemda en kynning fullgerðrar skýrslu fyrir stjórn SSH mun fara fram síðar.


Lagt fram til kynningar og athugasemda.
2. 2409009 - Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Framhald umræðna frá 629. fundi. Fyrirliggjandi er erindi Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, sem barst hinn 9. júní 2026, þar sem óskað er eftir tilnefningum stjórnar SSH til stjórnar og stefnuráðs Markaðsstofunnar en SSH skal tilnefna fjóra stjórnarmenn auk tveggja til vara og sex einstaklinga í stefnuráð. Þess er óskað að tilnefningar berist eigi síðar en 8. september nk. en aðalfundur verður haldinn 16. september nk.

Tilnefningar stjórnar SSH til stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins eru eftirfarandi:
Þorvaldur Davíð Kristjánsson, varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
Berglind Haraldsdóttir, Kópavogi.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Stella Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ.

Tilnefndir varamenn eru:
Gylfi Þór Þorsteinsson bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi.

Eftirtalin eru þá tilnefnd í stefnuráð Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins:
Rúnar Freyr Gíslason, borgarfulltrúi Reykjavík.
Elísabet Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi Kópavogi.
Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfullltrúi Hafnarfirði.
Jón Þór Eggertsson, bæjarfulltrúi Garðabæ.
Gylfi Þór Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Mosfellsbæ.
María Björk Óskarsdóttir, Seltjarnarnes.
3. 2205009 - Skíðasvæðin -Rekstur
Fyrirliggjandi til kynningar er fundargerð 439. fundar samstarfsnefndar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins dags. 19. ágúst 2026.

Í fundargerðinni kemur m.a. fram að samstarfsnefnd hafi samþykkt tilteknar breytingar á framkvæmdaáætlun varðandi tilfærslur milli verkliða.

Þá er fyrirliggjandi erindi samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins þar sem óskað er eftir umræðu og ákvörðun frá stjórn SSH um það hvort tilefni sé til endurskoðunar á samkomulagi um uppbyggingu og rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, bæði á framkvæmdaáætlun og fjárhæðum sem þar eru.


Erindi samstarfsnefndarinnar, svo og umfjöllun um þær breytingar á framkvæmdaáætlun sem tilgreindar eru í fundargerð 439. fundar hennar, er vísað til verkefnahóps skíðasvæðanna, sem er falið að meta sviðsmyndir og tillögur að uppbyggingu á Skálafelli miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir. Málið verði tekið fyrir að nýju á fundi stjórnar 5. október nk.

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar leggur fram eftirfarandi bókun:

"Mosfellsbær leggur þunga áherslu á að staðið verði við samkomulag sveitarfélaganna frá árinu 2018 um uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Frá gerð samkomulagsins hefur umfangsmikil uppbygging átt sér stað í Bláfjöllum og Mosfellsbær hefur staðið við sínar fjárhagslegu skuldbindingar vegna þeirrar uppbyggingar. Á sama tíma hefur sú uppbygging sem fyrirhuguð var í Skálafelli ekki gengið eftir og svæðið hefur verið lokað.
Mosfellsbær getur ekki fallist á að samkomulagið verði í reynd endurskilgreint þannig að fjárfestingum og uppbyggingu verði haldið áfram í Bláfjöllum en Skálafell látið sitja eftir. Að mati Mosfellsbæjar er það hvorki í samræmi við þær forsendur sem lágu að baki samkomulaginu né það samstarf og jafnræði sveitarfélaganna sem það byggir á.
Mosfellsbær gerir því skýra kröfu um að staðið verði við fyrirliggjandi samkomulag, gerð verði tímasett áætlun um nauðsynlega uppbyggingu í Skálafelli og að stefnt verði að opnun svæðisins sem fyrst."

4. 2405005 - PANT akstursþjónusta
Áframhaldandi umræður um Pant akstursþjónustu. Málið var síðast til umræðu á 627. fundi stjórnar og þá var stjórn Pant falið að undirbúa innkaupaferli annars vegar miðað við óbreytta þátttöku sveitarfélagannna og hins vegar miðað við þær forsendur að um sameiginlegt verkefni allra sveitarfélaganna verði að ræða. Jóhannes Rúnarsson og Sturla Halldórsson kynna.

Framkvæmdastjóra Strætó bs. er falið að koma á fundi með fjármálastjórum sveitarfélaganna og stjórn Pant þar sem framangreint verði til umfjöllunar og greint frekar. Útboðsgögn vegna Pant verði undirbúin miðað við núverandi aðildarsveitarfélög en líka þannig að samstarfið geti tekið til fleiri sveitarfélaga.
 
Gestir
Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs.
Sturla Halldórsson deildarstjóri Pant
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 

Til bakaPrenta